

Hrund Guðmundsdóttir
Ég útskrifaðist sem grafískur hönnuður 1998 frá Listaháskóla Íslands.
Hef unnið sem hönnuður og hönnunarstjóri á Íslensku auglýsingastofunni og verið grafískur hönnuður á Brandenburg ásamt því að starfa sjálfstætt fyrir Íslensk fyrirtæki og ensk en ég bjó í London frá 2001-2008.
Fyrirtæki sem ég hef unnið sjálfstætt fyrir eru m.a: Florealis, Alvogen, Actavis, PWC, MP Banki, Sparnaður, VSÓ, Heilsustofnun, Hveragerðisbær, AFS, Kjörís, Samkeppniseftirlitið, Hendrikka Waage, Varmá, Ölverk, o.fl.
Ég hef mikinn áhuga á ritlist og útgáfu og hef gefið út og ritstýrt bæjarblaði Hvergerðinga Krummanum ásamt því að taka þátt í útgáfu og semja sögur í smásagnasöfn ásamt öðrum rithöfundum.
Ég er með vinnustofu í Hveragerði þar sem ég rek hönnunar- og útgáfufyrirtækið mitt Klettagjá ehf.
Ég er félagi í FÍT - Félagi íslenskra teiknara.
Fleiri verk má finna á https://hrund.myportfolio.com/